Félagsmálaráðuneyti

288/1978

Reglugerð um holræsi í Varmahlíð í Seyluhreppi í Skagafjarðarsýslu. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi í Varmahlíð í Seyluhreppi í Skagafjarðarsýslu.

 

1. gr.

Þegar Seyluhreppur hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði, eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun eldri holræsa, er þeim húseigendum, er þar eiga hús eða í námunda við, skylt að byggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu, sem flytja allt skólp frá því út í aðalræsið.

            Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, eftir því sem unnt er, leiða út í ræsið. Vanræki einhver húseigandi að láta gera holræsi, skal hreppsnefnd heimilt, með hæfilegum fyrirvara, að vinna verkið á kostnað húseiganda.

 

2. gr.

Heimilt er sveitarstjórn að fela sérstökum umsjónarmanni yfirstjórn holræsa­kerfisins.

 

3. gr.

Áður en húseigandi byrjar að leggja ræsi sitt skal hann skýra oddvita eða umsjónarmanninum frá því og fá samþykki þar til.

Skylt er húseiganda að hlýða fyrirmælum umsjónarmanns í öllu því, er að til­högun lagningu ræsanna lýtur, enda hafi umsjónarmaður ávallt eftirlit með því, að vel og örugglega sé frá öllu gengið.

 

4. gr.

Allt efni, sem notað er til holræsagerðar, skal standast kröfur byggingarsam­þykktar, en auk þess getur byggingarnefnd sett reglur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseiganda, þar sem ástæða þykir til.

Bannað er að láta renna í holræsakerfið sýrur, olíur eða önnur efni, sem valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun.

 

5. gr.

Kostnaður allur við aðalholræsakerfið greiðist tír hreppssjóði.

Til þess að stands straum af þeim kostnaði svo og viðhaldi aðalholræsakerfis­ins skal hver húseigandi greiða hreppssjóði tengigjald, er hann tengir hús sitt við holræsakerfið.

Greiða skal í tengigjald kr. 250.00 pr. m3 íbúðarhúsa og kr. 125.00 pr. m3 ann­arra húsa, hvorttveggja miðað við byggingarvísitölu 192. Gjald þetta breytist til hækkunar eða lækkunar í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu.

            Tengigjald skal greitt eða um það samið, áður en tenging við aðalræsið er leyfð.

Þá skal og hver húseigandi, sem tengt hefur hús sitt holræsakerfinu greiða ár­lega 0.3% af fasteignamati húss og lóðar þó aldrei minna en kr. 3 000.00 af húsi eða húshluta, sem talið er sér í fasteignamati, enda sé skolplögn frá viðkomandi húsi eða húshluta. Undanþága frá greiðslu fasteignaskatts skapar ekki undanþágu frá greiðslu holræsagjalda. Sé hús, sem greiða ber holræsagjald fyrir, ekki virt fasteignamats­virðingu ákveður hreppsnefnd gjaldið.

Gjöld samkvæmt grein þessari er sveitarstjórn heimilt að hækka eða lækka um 50 af hundraði, án þess að samþykki ráðuneytis komi til.

 

6. gr.

Holræsagjald greiðist af húseiganda og er hann einn ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart hreppnum.

Kröfur þær, sem hreppsnefnd kann að öðlast samkvæmt reglugerð þessari, má taka lögtaki á kostnað gjaldanda. og eru gjöld þessi tryggð með lögveði í húseign­inni í næstu tvö ár eftir gjalddaga, með forgangaveðrétti fyrir hvers konar samnings­- og aðfararveði.

Gjalddagi holræsagjalds er 15. jan. ár hvert.

Gjaldið greiðist oddvita hreppsins eða þeim, sem hreppsnefnd felur innheimtu þess.

 

7. gr.

            Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 100 000.00 nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum, sekt þessi rennur í sveitarsjóð. Mál út af broti gegn reglugerð þessari skal fara með sem almennt lögreglumál.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Seyluhrepps í Skaga­fjarðarsýslu, staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923, til þess að öðlast gildi þegar í stað, og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

 

Félagsmálaráðuneytið, 7. júlí 1978.

 

F. h. r. Hallgrímur Dalberg.

 Hólmfríður Snæbjörnsdóttir

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica