Félagsmálaráðuneyti

267/1976

Reglugerð um holræsi og holræsagjöld í Grundarfirði. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi og holræsagjöld í Grundarfirði.

 

1. gr.

Hreppsnefnd Eyrarsveitar tekur ákvörðun, samkvæmt skipulagi, um lagningu holræsa, aðalæða og götuæða.

 

2. gr.

Þegar holræsi hefur verið lagt í veg, götu eða annað opið svæði, eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun holræsa, er þeim húseig­endum, er þar eiga húseignir að eða í námunda við, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu er flytji allt skólp frá því út í aðalræsið. Á sama hátt skal farið með regnvatn af húsum og lóðum ef unnt er og það tengt við aðalræsi eða sérstakt regnvatnsræsi.

 

3. gr.

Öll framkvæmdastörf, sem holræsakerfi kauptúnsins varða, svo sem viðhald, endurbætur, viðauka og umsjón alla, annast maður, sem hreppsnefnd felur það, undir yfirumsjón hreppsnefndar. Er engum heimilt að leggja ræsi í aðalræsi, nema að fengnu leyfi þessara aðila og er mönnum skylt að hlíta í öllu fyrirmælum þeirra um gerð og legu ræsisins og annað þess háttar, er máli skiptir í sambandi við það.

 

4. gr.

Kostnaður við aðalholræsakerfið greiðist úr sveitarsjóði. Til að standast þann kostnað ber húseigendum, sem húseignir eiga við götu, veg eða opið svæði, þar sem holræsi er lagt í, að greiða stofngjald, sem hreppsnefnd ákveður árlega. Stofn­gjaldið skal greiðast áður en tenging við aðalræsi er leyfð.

Auk stofngjalds af hverri húseign, sem tengd er holræsakerfi hreppsins, skal húseiganda skylt að greiða árlegt holræsagjald, sem nemur 0.10% af hinu upp­bera fasteignamati húss og lóðar eins og það er notað hverju sinni sem álagninga­stofn fasteignaskatts. Undanþága frá greiðslu hins almenna fasteignaskatts skapar ekki undanþágu frá greiðslu holræsagjalds. Heimilt er hreppsnefnd fyrir eitt ár í senn að hækka eða lækka holræsagjaldið um allt að 50% án staðfestingar ráðu­neytisins.

 

5. gr.

Húseigendum ber að greiða holræsagjaldið og bera þeir einir ábyrgð á greiðslu þess. Holræsagjaldið má taka lögtaki og er það tryggt með lögveði í eigninni næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfarar­veði. Gjalddagi holræsagjaldsins er 15. febrúar ár hvert.

 

6. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum, allt að kr. 10 000, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Eyrarsveitar og sett er samkvæmt lögum nr. 15 20. júní 1923, staðfestist hér með til þess að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

 

Félagsmálaráðuneytið, 11. júní 1976.

 

F. h. r. Hallgrímur Dalberg.

Skúli Sigurðsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica