Velferðarráðuneyti

1204/2018

Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

1. gr.

Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði skv. 32. gr. laga um atvinnu­leysis­tryggingar miðast við tryggingahlutfall hins tryggða þannig að þær nemi aldrei hærri fjárhæð en 440.970 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu, sbr. 15. eða 19. gr. laganna. Til að finna út atvinnuleysisbætur fyrir hvern dag skal miða við 21,67 daga í mánuði.

2. gr.

Sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á rétt til óskertra grunn­atvinnuleysisbóta sem skulu nema 279.720 kr. á mánuði. Lágmarksréttur til atvinnu­leysis­trygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.

3. gr.

Frítekjumark skv. 2. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal vera 68.852 kr. á mánuði.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, kemur í stað reglugerðar nr. 548/2006, um sama efni, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2019.

Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica