Menntamálaráðuneyti

190/1974

Reglugerð um Lagastofnun Háskóla Íslands - Brottfallin

REGLUGERР

um Lagastofnun Háskóla Íslands.

 

1. gr.

Lagastofnun Háskóla Íslands starfar við lagadeild Háskóla Íslands.

 

2. gr.

          Hlutverk Lagastofnunarinnar er:

1)    Að vera vísindaleg rannsóknastofnun í lögfræði.

2) Að vera vísindaleg kennslustofnun i lögfræði fyrir kandídata og stúdenta, er vinna að fræðilegum verkefnum, sem sinnt er i stofnuninni, eftir nánari ákvörðun stjórnar stofnunarinnar.

3) Að vera með sama hætti, eftir því sem aðstæður leyfi, vísindaleg rannsókna og kennslustofnun í greinum, sem skyldar eru lögfræði eða stunda ber f lagadeild.

 

3. gr.

          Hlutverk sínu gegnir Lagastofnunin með því að:

            1) Veita starfsmönnum stofnunarinnar og gestum fyrirgreiðslu í rannsóknum þeirra, svo sem varðandi húsnæði, ritaraþjónustu, bókavarðaþjónustu og aðra aðstoð við vísindastörf.

          2) Gera rannsóknaáætlanir og standa að framkvæmd þeirra.

          3) Hafa samvinnu við Háskólabókasafn, Landsbókasafn, bókasafn Hæstaréttar Íslands og önnur bókasöfn um útvegun, varðveislu og nýtingu lagabóka og tímarita.

          4) Hafa samvinnu við aðrar vísindastofnanir, innanlands og utan, svo og aðra aðila, um málefni á starfssviði stofnunarinnar.

          5) Taka að sér í eigin nafni rannsóknarverkefni fyrir aðra aðila eftir ákvörðun stjórnar stofnunarinnar í hvert sinn.

          6) Gangast fyrir ráðstefnum, umræðufundum, námskeiðum, fyrirlestrum og annarri starfsemi, sem starfssvið stofnunarinnar varðar.

          7) Vinna að útgáfu rita um efni á starfssviði stofnunarinnar.

          8) Safna gögnum um lögfræðileg efni, varðveita þau og veita aðgang að þeim til vísindalegrar úrvinnslu.

 

4. gr.

                      Kennarar í fullu starfi við lagadeild teljast starfa við Lagastofnun Háskóla Íslands, nema þeir starfi við aðra rannsólinastofnun eða óski að vera undan því þegnir.

                      Kandidatar og stúdentar, sem fá aðstöðu til námsvinnu við fræðileg verkefni, sær. 2. tl. 2. gr., starfa við stofnunina tiltekinn tíma, er ekki skal vera lengri en eitt ár í senn. Stjórnin getur falið forstöðumanni eða einstökum kennurum að veita aðstöðu þessa. Stjórnin getur sett að skilyrði fyrir aðstöðunni, að viðkomandi taki að sér stjórnunarstörf eða þjónustustörf við Lagastofnunina eða kennslu við lagadeild. Um þóknun fyrir slík störf fer eftir reglum Háskólans.

                      Stjórn stofnunarinnar getur boðið mönnum til fræðistarfa við Lagastofnunina í allt að eitt ár í senn. Fela má slíkum gestum stofnunarinnar stjórnunarstörf og þjónustustörf með samþykki þeirra, en til þess þarf ákvörðun stjórnar.

          Kennarar við lagadeild, sem ekki eru í fullu starfi, skulu teljast starfsmenn stofnunarinnar að hluta, ef þeir óska þess og stjórnin samþykkir.

                      Við stofnunina starfa að auki sérfræðingar, ;aðstoðarmenn og aðrir starfsmenn eftir því sem heimild er til í fjárlögum.

                      Forstöðumaður og annað starfslið skulu fá greidda þóknun eftir gildandi reglum innan Háskólans eða eftir nánari ákvörðun, þegar fært þykir.

                                  Háskólinn sér starfsliði fyrir vinnuaðstöðu.

 

5. gr.

                      Stjórn Lagastofnunar Háskóla íslands er skipuð 4 kennurum í fullu starfi við lagadeild, sem við stofnunin starfa, kjörnum af lagadeild til 2 ára í senn, og 1 fulltrúa stúdenta, tilnefndum of stjórn Orators, félags laganema, til sama tíma. Stjórnin ræður þá starfsmenn stofnunarinnar, sem ekki eru kennarar, eftir því sem heimild er til í fjárlögum, og tekur aðrar ákvarðanir um málefni hennar.

                      Daglegan rekstur stofnunarinnar annast forstöðumaður, kosinn of stjórn hennar úr hópi stjórnarmanna til tveggja ára í senn.

i febrúar á hverju ári skal forstöðumaður Lagastofnunarinnar boða til fundar með fimm daga fyrirvara alla starfsmenn stofnunarinnar og gesti. Forstöðumaður má og boða til fundarins aðra síarfsmenn við Háskóla Íslands svo og einstaklinga og fulltrúa félagssamtaka og stofnana, ef harm eða stjórnin telur þátttöku þeirra hafa þýðingu fyrir Lagastofnunina. Á fundi þessum skal forstöðumaður leggja fram skýrslu um starfsemi stofnunarinnar næsta ár á undan, svo og tillögur stjórnarinnar um fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Skal ræða um þessi mál á fundinum svo og önnur mál, sem stjórn eða forstöðumaður vilja leggja fyrir hinn. Málefni stofnunarinnar önnur skal og ræða, en heimilt er forstöðumanni að auglýsa með viku fyrirvara, að krafa um að setja mál á dagskrá skuli gerð sjö dögum fyrir fundinn. Fundur þessi nefnist ársfundur Lagastofnunar Háskóla Íslands. Hann hefur ekki ákvörðunarvald, en getur samþykkt ályktanir til lagadeildar.

                      Aukafundir Lagastofnunar skulu haldnir til að ræða um málefni, er hana varða, ef forstöðumaður telur það æskilegt, eða ef a.m.k. 4 starfsmenn stofnunarinnar í fullu starfi óska þess eða 15 menn aðrir, sem rétt eiga til setu á ársfundi.

Stjórn Lagastofnunarinnar getur kosið nefndir til að sinna tilteknum verkefnum fyrir hans. Kjörtími má ekki vera lengri en tvö ár. Slíkar nefndir hafa ekki ákvörðunarvald, nema þeim sé sérstaklega fengið það í samþykkt stjórnarinnar. Kjósa má menn utan Lagastofnunar í slíkur nefndir.

                      Nú telur einhver sá, sem rétt á til setu á ársfundi Lagastofnunar eða fundum lagadeildar, ákvörðun stjórnar eða forstöðumanns vera andstæða kvæðum reglu­gerðar þessarar eða öðrum ákvæðum reglugerðar eða laga Háskólans, og getur hann þá skotið ákvörðuninni til lagadeildar.

 

6. gr.

Kostnað við starfsemi Lagastofnunar Háskóla Íslands skal greiða með:

          1) framlögum úr ríkissjóði,

          2) framlögum úr öðrum opinberum sjóðum,

          3) framlögum frá öðrum aðilum,

         4) greiðslum fyrir verkefni, sem Lagastofnunin tekur að sér skv. 5. tl. 3. gr.,

         5) arði of eignum stofnunarinnar.

Stjórn stofnunarinnar skal álykta um viðtöku fjár skv. 2., 3. og 4. 1ið, þ. á m. um skilyrði sem framlögin kunna að vera bundin.

Stjórnin hefur umsjón með fjármálum stofnunarinnar og gengur frá rekstrar­áætlun og tillögum um fjárveitingar til stofnunarinnar, eftir að ársfundur hennar hefur verið haldinn. Rekstraráætlun og fjárveitingatillögur skulu sendar lagadeild til meðferðar skv. lögum.

Fjármálin heyra endanlega undir rektor og háskólaritara, sbr. 3. og 4. mgr. 2. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 84/197b, um Háskóla íslands. Skal reikningshaldið vera hluti of heildarreikningi Háskólans.

 

7. gr.

          Til bókasafns stofnunarinnar skal leggja þann bókakost Háskólabókasafns, er fellur undir fræðasvið hennar, að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar, bókasafnsnefndar og háskólabókavarðar til háskólaráðs.

          Við stofnunarbókasafnið skal árlega auka í samræmi við fjárveitingar til Háskólabókasafns, enda heyrir stofnunarbókasafnið undir það.

Enn fremur njóti stofnunin þeirrar þjónustu, sem um getur í lögum nr. 38/ 1969 um Landsbókasafn Íslands, sær, sérstaklega 1. mgr. 8. gr., þar sem svo er mælt fyrir, að stofnanir Háskólans hafi söfn í sinni vörslu, sbr. og 2. mgr. sömu greinar, svo og 12. og 13. gr, téðra laga.

          Stjórn Lagastofnunar í árbók Háskóla íslands.

 

8. gr.

gengur frá ársskýrslu stofnunarinnar, og skal hún birt

 

9. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 9, gr. laga nr. 84/1970 um Háskóla íslands, sbr. háskólareglugerð nr. 76/1958, 87. gr., og öðlast þegar gildi.

 

Í menntamálaráðuneytinu, 18. júní 1974..

 

Magnús T. Ólafsson.

Birgir Thorlacius.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica