Eftirtaldar breytingar verða á 2. mgr. 1. gr.:
Í stað orðsins "eitt ár" í öðrum málslið kemur: tvö ár.
Við málsgreinina bætist nýr málsliður svohljóðandi: Seljandi getur farið fram á framlengingu gildistíma vottorðsins um tvö ár í senn hjá Skattstjóranum í Reykjavík, þyki staðfest að forsendur séu óbreyttar frá því vottorðið var gefið út.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 12. gr. og 35. gr. laga nr. 50/1988, með áorðnum breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytið, 9. júní 1995.
F. h. r.
Jón Guðmundsson.
Hermann Jónsson.