Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

113/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða:

Þrátt fyrir ákvæði 9. tölul. 3. mgr. 13. gr. skal heildarfjárhæð sem varið skal til skólaaksturs úr dreifbýli ekki vera hærri en 795,5 m.kr. á árunum 2007, 2008, 2009 og 2010. Hlutfall annarra viðmiða í greininni hækkar sem því nemur.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Þá falla jafnframt úr gildi reglugerðir nr. 1284/2007 og 1213/1008.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. janúar 2010.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica