Viðskiptaráðuneyti

169/2007

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 243/2006, um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB að því er varðar upplýsingar í lýsingum, svo og framsetningu þeirra, upplýsingar felldar inn með tilvísun, og birtingu lýsinganna, svo og dreifingu auglýsinga. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi er sett vegna gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 1787/2006 frá 4. desember 2006 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB að því er varðar upplýsingar í lýsingum, svo og framsetningu þeirra, upplýsingar felldar inn með tilvísun, og birtingu lýsinganna, svo og dreifingu auglýsinga.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 1787/2006 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB að því er varðar upplýsingar í lýsingum, svo og framsetningu þeirra, upplýsingar felldar inn með tilvísun, og birtingu lýsinganna, svo og dreifingu auglýsinga, merkt fylgiskjal I með reglugerð þessari.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 1787/2006 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 73. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Um leið fellur úr gildi 35. gr. í fylgiskjali I með reglugerð nr. 243/2006.

Viðskiptaráðuneytinu, 1. mars 2007.

Jón Sigurðsson.

Kristján Skarphéðinsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica