Prentað þann 26. apríl 2024
133/1998
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 144/1994 um rafföng til notkunar á sprengihættustöðum með eða án tiltekinnar varnartilhögunar.
1. gr.
Viðauki við reglugerð þessa skal koma í stað 1. viðauka við reglugerð nr. 144/1994 um rafföng til notkunar á sprengihættustöðum með eða án tiltekinnar varnartilhögunar.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga nr. 146/1996 og byggir á tilskipun 97/53/EBE um breytingu á tilskipun 79/196/EBE. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Viðskiptaráðuneytinu, 24. febrúar 1998.
F. h. r.
Halldór J. Kristjánsson.
Atli Freyr Guðmundsson.
VIÐAUKI Evrópustaðlar.
Númer | Titill | Útgáfa | Dagsetning |
ÍST EN 50014 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Almennar kröfur | 2 | Desember 1992 |
ÍST EN 50015 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Olíufylling "o" | 2 | Apríl 1994 |
ÍST EN 50016 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Háþrýstitæki "p" | 2 | Október 1995 |
ÍST EN 50017 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Sallafylling "q" | 2 | Apríl 1994 |
ÍST EN 50018 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Logatraust umlykja "d" | 2 | Ágúst 1994 |
ÍST EN 50019 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Aukið öryggi "e" | 2 | Mars 1994 |
ÍST EN 50020 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Sjálftrygg útfærsla "i" | 2 | Ágúst 1994 |
ÍST EN 50028 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Innsteypt útfærsla "m" | 1 | Febrúar 1987 |
ÍST EN 50039 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Sjálftrygg rafkerfi "i" | 1 | Mars 1980 |
ÍST EN 50050 | Raftæki fyrir sprengihættustaði - Rafsviðssprautunarbúnaður sem halda þarf á. | 1 | Janúar 1986 |
ÍST EN 50053-1 | Kröfur um val, uppsetningu og notkun rafsviðssprautunarbúnaðar fyrir eldfim efni - 1. hluti: Rafsviðssprautur fyrir málningu með orkumörkin 0,24 mJ sem halda þarf á og aukabúnaður þeirra. | 1 | Febrúar 1987(*) |
ÍST EN 50053-2 | Kröfur um val, uppsetningu og notkun rafsviðssprautunarbúnaðar fyrir eldfim efni - 2. hluti: Rafsviðssprautur fyrir duft með orkumörkin 5 mJ sem halda þarf á og aukabúnaður þeirra. | 1 | Júní 1989(*) |
ÍST EN 50053-3 | Kröfur um val, uppsetningu og notkun rafsviðssprautunarbúnaðar fyrir eldfim efni - 3. hluti: Rafsviðssprautur fyrir spunakló með orkumörkin 0,24 mJ eða 6 mJ sem halda þarf á og aukabúnaður þeirra. | 1 | Júní 1989(*) |
(*) Hér er einungis átt við greinar sem fjalla um smíði tækja sem eru tilgreind í stöðlunum ÍST EN 50053, 1., 2. og 3. hluta.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.