Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

401/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl. nr. 37/2009.

1. gr.

Á eftir 6. gr. kemur ný grein er verður 6. gr. a, svohljóðandi:

Innheimtubætur skv. 6. gr. laga um greiðsludrátt í verslunarviðskiptum skulu koma til frá­dráttar innheimtukostnaði skv. reglugerð þessari, hvort sem þeirra hefur verið krafist fyrir eða eftir innheimtuaðgerðir á grundvelli reglugerðar þessarar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um greiðsludrátt í verslunar­viðskiptum, nr. 8/2015 og 12. gr., sbr. 21. gr., innheimtulaga nr. 95/2008, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. apríl 2015.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Brynhildur Pálmarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica