Heilbrigðisráðuneyti

1249/2021

Reglugerð um um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1130/2012 um menntun, réttindi og skyldur sálfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.

1. gr.

1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða hljóðar svo:

Um þá sem ljúka framhaldsnámi, skv. 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. eftir 1. júlí 2021 en fyrir 1. júlí 2023, gildir ekki ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 3. gr.

 

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. og 30. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012 og 6. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 4. nóvember 2021.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Heiða Björg Pálmadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica