Velferðarráðuneyti

1037/2016

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1266/2007 um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins vegna kostnaðar sjúkratryggðra barna yngri en 18 ára við þjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðinga. - Brottfallin

1. gr.

Í stað orðanna "Tryggingastofnunar ríkisins" í 1. mgr. 1. gr. og sömu orða hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur, í viðeigandi beygingarmynd: Sjúkratryggingar Íslands.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu "heilbrigðisstarfsmanna" í 2. tölul. og 4. tölul. kemur: eða barnageðlæknis.
  2. Á eftir orðinu "teymisins" í 3. og 4. málsl. 4. tölul. kemur: eða barnageðlæknis.
  3. Á eftir orðinu "Teymið" í 5. málsl. 4. tölul. kemur: eða barnageðlæknir.

3. gr.

Heiti reglugerðarinnar breytist og verður: Reglugerð um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands vegna kostnaðar sjúkratryggðra barna yngri en 18 ára við þjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðinga.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 22. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. desember 2016.

Velferðarráðuneytinu, 18. nóvember 2016.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.

Vilborg Ingólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica