Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

977/2016

Reglugerð um desemberuppbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði í desember 2016.

2. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2016 og verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2016 á rétt á desemberuppbót úr Atvinnuleysistryggingasjóði að fjárhæð kr. 60.616 enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

3. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2016 og verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun samtals í tíu mánuði eða lengur á árinu 2016 en tryggður hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

4. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2016 en verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2016 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 5. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2016 en verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2016 ásamt því að hafa verið tryggður hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem hann hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun á árinu 2016, sbr. þó 5. gr.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

5. gr.

Desemberuppbót skv. 4. gr. skal aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 15.154 miðað við að viðkomandi hafi átt rétt á óskertu tryggingarhlutfalli skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma. Lágmarks desemberuppbót er ¼ hluti sömu fjárhæðar.

6. gr.

Desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari skulu greiddar út eigi síðar en 18. desember 2016.

7. gr.

Sá sem á rétt á desemberuppbót úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt reglugerð þessari og hefur framfærsluskyldu gagnvart barni eða börnum yngri en 18 ára á rétt á 4% af óskertri desemberuppbót, sbr. 1. mgr. 2. gr., með hverju barni.

8. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 16. nóvember 2016.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.