Velferðarráðuneyti

1230/2015

Reglugerð um orlofs- og desemberuppbætur til lífeyrisþega árið 2016. - Brottfallin

1. gr.

Orlofs- og desemberuppbætur.

Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 8. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur á árinu 2016.

2. gr.

Orlofsuppbót.

Í júlí skal greiða 20% uppbót á fjárhæðir skv. 1. gr. sem reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega síðustu 12 mánuði fyrir greiðslu uppbótarinnar.

3. gr.

Desemberuppbót.

Í desember skal greiða 30% uppbót á fjárhæðir skv. 1. gr. sem reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega á árinu 2016.

4. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2016. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1220/2014, um orlofs- og desemberuppbætur til lífeyrisþega árið 2015.

Velferðarráðuneytinu, 21. desember 2015.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica