Velferðarráðuneyti

1029/2014

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 917/2011 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. - Brottfallin

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

Í stað orðanna "31. desember 2014" í síðari málsl. 1. mgr. kemur: 31. desember 2015.

2. gr.

8. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

Í stað orðanna "31. desember 2014" í fyrri málslið greinarinnar kemur: 31. desember 2015.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 10. nóvember 2014.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Sveinn Magnússon.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica