Velferðarráðuneyti

1211/2014

Reglugerð um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa. - Brottfallin

1. gr.

Hámarksábyrgð á kröfum launamanna skv. a- og b-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, með síðari breytingum, skal vera 385.200 kr. miðað við hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum skv. c-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laganna skal vera 617.000 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1208/2008, um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.

Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2014.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica