Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2016

1213/2014

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. 5. mgr. orðast svo:
    Þrátt fyrir 2.-4. mgr. skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til foreldris í fæðingarorlofi aldrei nema hærri fjárhæð en 370.000 kr.
  2. Í stað "97.786 kr." í 6. mgr. kemur: 100.720 kr.
  3. Í stað "135.525 kr." í 6. mgr. kemur: 139.591 kr.

2. gr.

Í stað "59.137 kr." í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar kemur: 60.911 kr.

3. gr.

Í stað "135.252 kr." í 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 139.591 kr.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 13. gr., 5. mgr. 18. gr., 5. mgr. 19. gr. og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 113/2014, um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2014.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.