Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. des. 2021

1072/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð um lánaflokka Íbúðalánasjóðs, nr. 57/2009.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. 7. og 10. tölul. falla brott.
  2. 8. tölul. orðast svo: Lán til endurbóta og viðhalds leiguíbúða, sbr. VI. kafla reglugerðar um lánveitingar Íbúðalánasjóðs til sveitarfélaga, félaga og félagasamtaka sem ætlaðar eru til byggingar eða kaupa á leiguíbúðum.

2. gr.

2. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

3. gr.

VIII. og IX. kafli reglugerðarinnar falla brott.

4. gr.

2. mgr. 46. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um starfsemi félaga og félagasamtaka sem eiga kost á lánum samkvæmt þessum kafla skal, eftir því sem við getur átt, gæta ákvæða reglugerðar um lánveitingar Íbúðalánasjóðs til sveitarfélaga, félaga og félagasamtaka sem ætlaðar eru til byggingar eða kaupa á leiguíbúðum.

5. gr.

XI. kafli reglugerðarinnar fellur brott.

6. gr.

Í stað orðanna "kærunefndar húsnæðismála" í 55. gr. reglugerðarinnar kemur: úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála.

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 16. gr. og 50. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 2. desember 2013.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.