Velferðarráðuneyti

945/2013

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 313/2013 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

a. 4. mgr. verður svohljóðandi:

Þegar sjúkratryggður hefur greitt 69.416 kr. fær viðkomandi fulla greiðsluþátttöku sjúkra­trygginga það sem eftir er af tólf mánaða tímabilinu skv. 6. og 11. gr. Til að sporna við of- og misnotkun lyfja er Sjúkratryggingum Íslands heimilt að binda fulla greiðslu­þátttöku sjúkratrygginga við ákveðinn fjölda lyfja, tiltekin lyf eða lyfjaskammta. Sjúkra­trygg­ingar Íslands geta jafnframt sett skilyrði um að notuð séu ódýrustu lyfin hverju sinni ef um er að velja fleiri en eitt lyf með sambærilega verkun. Samþykki fyrir fullri greiðslu­þátttöku sjúkratrygginga skal að jafnaði háð því að notaðar séu hag­kvæm­ustu pakkn­inga­stærðir hverju sinni.

b. 6. mgr. verður svohljóðandi:

Þegar aldraður, öryrki, barn eða ungmenni hefur greitt 46.277 kr. fær viðkomandi fulla greiðsluþátttöku sjúkratrygginga það sem eftir er af tólf mánaða tímabilinu skv. 6. og 11. gr. Til að sporna við of- og misnotkun lyfja er Sjúkratryggingum Íslands heimilt að binda fulla greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við ákveðinn fjölda lyfja, tiltekin lyf eða lyfja­skammta. Sjúkratryggingar Íslands geta jafnframt sett skilyrði um að notuð séu ódýr­ustu lyfin hverju sinni ef um er að velja fleiri en eitt lyf með sambærilega verkun. Sam­þykki fyrir fullri greiðsluþátttöku sjúkratrygginga skal að jafnaði háð því að notaðar séu hag­kvæmustu pakkningastærðir hverju sinni.

2. gr.

3. tölul. 2. mgr. 11. gr. fellur brott.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 25. gr., 1. mgr. 29. gr. og 55. gr. laga um sjúkra­tryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast gildi frá og með 1. desember 2013.

Velferðarráðuneytinu, 10. október 2013.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Anna Lilja Gunnarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica