Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 24. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. maí 2020

1121/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur tannlækna og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um tannlækna sem hafa starfsleyfi og sérfræðileyfi landlæknis skv. 2. og 5. gr.

II. KAFLI Starfsleyfi.

2. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig tannlækni og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa kandídatsprófi í tannlækningum (cand. odont-prófi) frá tannlæknadeild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Einnig má staðfesta starfsleyfi frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss eða veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá fyrrgreindum ríkjum. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi tannlæknis sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Þá er heimilt að veita sérfræðileyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis fer skv. 13. gr.

4. gr. Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar tannlæknadeildar heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir útgáfu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI Sérfræðileyfi.

5. gr. Sérfræðileyfi.

Rétt til að kalla sig sérfræðing í tannlækningum og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

6. gr. Skilyrði fyrir sérfræðileyfi.

Sérfræðileyfi má veita í samfélagstannlækningum og klínískum sérgreinum innan tannlækninga. Skilyrt er að sérfræðinám umsækjanda sé skilgreint innan þeirrar sérgreinar eða þess sérsviðs sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til. Viðkomandi sérsvið skal standa á traustum fræðilegum grunni og eiga sér samsvörun á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi.

Með klínískum sérgreinum er átt við svið þar sem störf fela í sér bein samskipti við sjúklinga svo og forvarnir, greiningu og meðferð.

Sérfræðinám í tannlækningum skal eigi vera skemmra en þrjú ár.

Til að tannlæknir geti átt rétt á að hljóta sérfræðileyfi skv. 5.gr. skal hann uppfylla eftirtaldar kröfur:

  1. hann skal hafa starfsleyfi sem tannlæknir hér á landi skv. 2. gr. og
  2. hann skal hafa stundað skilgreint sérfræðinám við háskóla og lokið fræðilegu og verklegu námi og uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru við viðkomandi háskóla sem viðurkenndur er af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað og
  3. hann skal leggja fram ritgerð um efni er snertir sérgrein hans og skal hún sýna þekkingu á vísindalegri aðferðarfræði og getu til að nýta sér fræðirit.

Umsækjanda um sérfræðileyfi í klínískri sérgrein ber að leggja fram sex sjúkraskrár vegna tilfella sem hann hefur sjálfur unnið er sýni sem fjölbreyttasta þekkingu á lausn klínískra vandamála. Sjúkraskrár skulu studdar öllum þeim gögnum sem nauðsynleg eru við mat, greiningu og meðferð viðkomandi vandamála eða sjúkdóms.

Umsækjandi um sérfræðileyfi í samfélagstannlækningum skal leggja fram tvær fræðigreinar sem birst hafa í viðurkenndu sérfræðitímariti eða hafa lokið meistara- eða doktorsprófi í samfélagstannlækningum.

Einnig má staðfesta sérfræðileyfi frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss eða gefa út sérfræðileyfi á grundvelli menntunar frá fyrrgreindum ríkjum. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi sérmenntaðs tannlæknis sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Þá er heimilt að veita sérfræðileyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis fer skv. 13. gr.

7. gr. Sérgreinar.

Sérfræðileyfi í tannlækningum má veita í eftirfarandi sérgreinum:

  1. Barnatannlækningum.
  2. Bitlækningum.
  3. Lyflækningum munnhols.
  4. Myndgreiningu munns og kjálka.
  5. Munn- og kjálkaskurðlækningum.
  6. Samfélagstannlækningum.
  7. Tann- og munngervalækningum.
  8. Tannfyllingu og tannsjúkdómalækningum.
  9. Tannholdslækningum.
  10. Tannholslækningum.
  11. Tannréttingum.
  12. Öldrunartannlækningum.

Heimilt er að veita tannlækni sérfræðileyfi að hámarki í tveimur sérgreinum að uppfylltum skilyrðum 6. gr. í hvorri sérgrein fyrir sig.

Heimilt er að tilgreina áherslusvið sem viðkomandi hefur sérhæft sig í innan klínískra sérsviða.

8. gr. Umsókn og umsagnir.

Umsókn um sérfræðileyfi í tannlækningum, ásamt gögnum sem staðfesta menntun og starfsreynslu og öðrum nauðsynlegum fylgiskjölum, skal senda til landlæknis.

Áður en sérfræðileyfi er veitt skv. 5. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skal landlæknir leita umsagnar tannlæknadeildar heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um hvort umsækjandi uppfylli skilyrði skv. 6. gr. til að hljóta sérfræðileyfi.

Landlækni er heimilt að skipa sérstaka mats- og umsagnarnefnd til að meta umsóknir um sérfræðileyfi í tannlækningum.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

IV. KAFLI Réttindi og skyldur.

9. gr. Faglegar kröfur og ábyrgð.

Tannlæknir skal sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Tannlækni ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Tannlæknir skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Tannlæknir ber ábyrgð á þeirri tannlæknisfræðilegu greiningu og meðferð sem hann veitir.

Tannlæknir skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt sjúklingi viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

10. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu tannlæknis gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu tannlæknis til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Tannlæknir skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

10. gr. a. Gildi eldri leyfa.

Þeir sem hlotið hafa starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 38/1985, um tannlækningar, með síðari breytingum, og sérfræðileyfi samkvæmt reglum nr. 402/1986 um sérfræðileyfi tannlækna, með síðari breytingum, eða reglugerð nr. 545/2007, um sérfræðileyfi tannlækna, með síðari breytingum, halda þeim réttindum óskertum.

11. gr. Aðstoðarmenn og nemar.

Tannlæknir ber ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar, sem starfa undir hans stjórn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

12. gr. Trúnaður og þagnarskylda.

Tannlæknir skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir tannlækni undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem tannlækni ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber tannlækni skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu tannlæknis gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

13. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis og sérfræðileyfis.

Umsækjandi um starfsleyfi sem tannlæknir skv. 2. og sérfræðileyfi í tannlækningum skv. 5. gr. frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem tannlæknir og tannlæknir með sérfræðileyfi, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. 3. gr. eða 6. gr. er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf, bæði fræðilegt og verklegt, sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af tannlækni og tannlækni með sérfræðileyfi. Viðeigandi menntastofnun skal skipuleggja prófið í samráði við landlækni.

Starfsleyfi og sérfræðileyfi eru gefin út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

14. gr. Lyfjaávísanir.

Um lyfjaávísanir tannlækna fer samkvæmt lyfjalögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

15. gr. Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis og sérfræðileyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

16. gr. Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um tannlækna.

17. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um sérfræðileyfi tannlækna, nr. 545/2007, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Tannlækni, sem við gildistöku reglugerðar þessarar hefur hafið sérnám samkvæmt reglugerð um sérfræðileyfi tannlækna, nr. 545/2007, er heimilt að haga námi sínu í samræmi við ákvæði hennar. Þeir sem hefja sérnám eftir gildistöku reglugerðar þessarar skulu haga náminu samkvæmt ákvæðum hennar.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 3. og 6. gr. er landlækni heimilt til 1. maí 2021 að veita þeim starfsleyfi og sérfræðileyfi sem lokið hafa prófi samkvæmt lögum nr. 38/1985, um tannlækningar, með síðari breytingum, og sérfræðileyfi samkvæmt reglum nr. 402/1986 um sérfræðileyfi tannlækna, með síðari breytingum, eða reglugerð nr. 545/2007, um sérfræðileyfi tannlækna, með síðari breytingum, og hafa viðhaldið kunnáttu sinni með því að hafa starfað við greinina frá því að framangreindu námi lauk.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.