Velferðarráðuneyti

1206/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga. - Brottfallin

1. gr.

Í stað "263.548 kr." í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 272.113 kr.

2. gr.

Í stað "167.176 kr." í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 172.609 kr.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2013.

Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica