Velferðarráðuneyti

609/2015

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 212/1998 um innflutning einstaklinga á lyfjum til eigin nota. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist ný grein, sem verður 6. gr. a, og orðast svo:

Undanþágur.

Lyfjastofnun er heimilt að veita undanþágur frá ákvæðum 3.-5. gr., vegna sérstakra aðstæðna, þegar sýnt er fram á að heilsu eða lífi einstaklings sé verulega ógnað.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 50. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breyt­ingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 22. júní 2015.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Sveinn Magnússon.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica