Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

369/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu nr. 1054/2010, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

Í stað orðanna "á heimili sínu" kemur: þar sem það á heimili.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. E-liður orðast svo: Þjónustuaðili: Sveitarfélag eða lögaðili um rekstur þjónustsvæðis, sem ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á þjónustu á heimilum fatlaðs fólks, eða lögaðili sem veitir þjónustu samkvæmt samningi við sveitarfélag eða þjónustusvæði.
  2. Liðir g-k falla brott.

3. gr.

6. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

4. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast tvær nýjar málsgreinar, á eftir 1. mgr., sem verða 2. og 3. mgr. svohljóðandi:

Sé umsókn skv. 4. gr. samþykkt skulu umsækjandi og þjónustuaðili gera í sameiningu einstaklingsbundna þjónustuáætlun um hvernig sérstakur stuðningur verði veittur. Miðað skal við að gengið sé frá áætlun eins fljótt og kostur er og eigi síðar en tólf mánuðum frá því að umsókn berst sveitarfélagi. Þjónustuaðili, og sveitarfélag, ef það er ekki þjónustuveitandi, og notandi skulu árlega endurskoða áætlun með tilliti til þarfa viðkomandi.

Þess skal gætt að sjálfsákvörðunarréttur fólks sé virtur. Geti einstaklingur ekki talað fyrir sig sjálfur skal leita allra leiða til að öðlast skilning á því hver vilji hans er og í því skyni leitað til þeirra sem þekkja hann best. Þess sé gætt að viðkomandi njóti stuðnings aðstandanda eða persónulegs talsmanns við gerð áætlunarinnar.

5. gr.

11. gr., 3.-6. mgr. 12. gr., 13. gr. og V. kafli reglugerðarinnar falla brott.

6. gr.

2. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

7. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. gr. laga um málefni fatlaðs fólk, nr. 59/1992, tekur þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 29. apríl 2016.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Bolli Þór Bollason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.