Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Breytingareglugerð

578/2023

Reglugerð um breytingar á reglugerðum sem varða þvingunaraðgerðir gagnvart Alþýðulýðveldinu Kóreu, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Íran, hryðjuverkastarfsemi, Líbíu, Malí, Suður-Súdan og Súdan.

1. gr. Almenn ákvæði.

Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um þvingunaraðgerðir sem varða Alþýðulýðveldið Kóreu, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, Íran, hryðjuverkastarfsemi, Líbíu, Malí, Suður-Súdan og Súdan til að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða eiga við um framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi reglugerðum er breytt sem hér segir:

a. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Alþýðulýðveldið Kóreu, nr. 160/2015, ásamt síðari breytingum.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
1.24 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.24.
2.15 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.15.
b. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, nr. 800/2015, ásamt síðari breytingum.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
1.26 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.26.
2.28 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.28.
c. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran, nr. 384/2014, ásamt síðari breytingum.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
3.34 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 3.34.
4.33 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 4.33.
d. Reglugerð um aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi, nr. 448/2014, ásamt síðari breytingum.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
1.15 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.15.
3.10 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 3.10.
2.6 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.6.
e. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbyu, nr. 887/2015, ásamt síðari breytingum.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
1.41 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.41.
2.39 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.39.
f. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Malí, nr. 381/2018, ásamt síðari breytingum.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.8.
2.6 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.6.
g. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Suður-Súdan, nr. 900/2015, ásamt síðari breytingum.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.3.
2.4 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.4.
h. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Súdan, nr. 804/2015, ásamt síðari breytingum.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
1.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.1.
2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.1.

3. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 26. maí 2023.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.