Utanríkisráðuneyti

1719/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr., í réttri númeraröð:

  1.21 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1989 frá 15. nóvember 2021 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 1.21.
  1.22 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1990 frá 15. nóvember 2021 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 1.22.
  1.23 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/2125 frá 2. desember 2021 um fram­kvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 1.23.
  2.28 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/1985 frá 15. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.28.
  2.29 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/1986 frá 15. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.29.
  2.30 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/2124 frá 2. desember 2021 um fram­kvæmd 8. gr. a(1) reglugerðar (EB) nr. 765/2006 með tilliti til Belarús, sbr. fylgi­skjal 2.30.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 21. desember 2021.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Anna Jóhannsdóttir.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica