Utanríkisráðuneyti

984/2016

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014:

  3.16 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1671 frá 15. september 2016 um breyting á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.16.
  4.19 Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1661 frá 15. september 2016 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.19.
  7.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1071 frá 1. júlí 2016 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.5.

Töluliður 5.3 í 2. gr. hljóði svo:

  5.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/982 frá 17. júní 2016 um breytingu á ákvörðun 2014/386/SSUÖ um þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevasto­pol, sbr. fylgiskjal 5.3.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 30. október 2016.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica