Utanríkisráðuneyti

94/2016

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líberíu nr. 831/2015. - Brottfallin

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliður bætist við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Líberíu nr. 831/2015:

  1.3 Ákvörðun ráðsins SSUÖ 2015/1782 frá 5. október 2015 um niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2004/487/SSUÖ varðandi frekari þvingunaraðgerðir varðandi Líberíu og um breyt­ingu á sameiginlegri afstöðu 2008/109/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Líberíu, fylgi­skjal 1.3.

3. töluliður sömu greinar fellur niður.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 22. janúar 2016.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica