Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

868/2012

Reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts til Landhelgisgæslu Íslands.

1. gr. Gildissvið.

Öryggis- og varnarsvæði, eins og þau eru skilgreind í varnarmálalögum nr. 34/2008, ásamt mannvirkjum íslenska ríkisins, Atlantshafsbandalagsins eða Bandaríkjanna þar, og starfsemi þeim tengd, skulu undanþegin öllum opinberum gjöldum, þ.m.t. vegna kaupa á vöru og þjónustu til viðhalds og rekstrar.

Landhelgisgæsla Íslands annast rekstur öryggis- og varnarsvæða skv. 1. mgr., í samræmi við samkomulag milli utanríkisráðherra og innanríkisráðherra um ráðstöfun verkefna Varnarmálastofnunar frá desember 2010, með vísan til 2. mgr. 5. gr. laga nr. 52/2006 um Landhelgisgæslu Íslands og 7. gr. a. varnarmálalaga nr. 34/2008.

Um þær eignir og þann rekstur sem Landhelgisgæsla Íslands annast fyrir hönd Atlantshafsbandalagsins, Samstarfs í þágu friðar, herliðs Bandaríkjanna eða annarra þjóðréttaraðila, sem samkvæmt lögum og alþjóðasamningum eru undanþegnir skatt- og tollskyldu, fer eftir þeim sérreglum sem um þá þjóðréttaraðila gilda.

Undanþágan samkvæmt ákvæði þessu tekur ekki til reksturs og viðhalds loftfara og skipa Landhelgisgæslu Íslands né kaupa á aðkeyptum rekstrarfjármunum, vörum, vinnu, þjónustu og öðrum aðföngum er varða ekki rekstur stofnunarinnar á öryggis- og varnarsvæðum skv. 2. mgr.

Landhelgisgæsla Íslands skal halda þeim innkaupum sem falla undir reglugerð þessa aðgreindum í bókhaldi frá öðrum innkaupum.

2. gr. Endurgreiðsla virðisaukaskatts.

Við kaup á vörum og þjónustu ber Landhelgisgæslu Íslands að greiða virðisaukaskatt samkvæmt lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

Samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar fær Landhelgisgæsla Íslands endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem stofnunin greiðir vegna kaupa á vöru og þjónustu sem fellur undir 1. gr. reglugerðarinnar.

3. gr. Gögn til staðfestingar endurgreiðslu.

Til staðfestingar á því að ákvæði 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar eigi við skal í hverju tilviki liggja fyrir áritun Landhelgisgæslu Íslands á frumrit reiknings seljanda að um sé að ræða kaup á vöru eða þjónustu sem fellur undir 1. gr. reglugerðarinnar. Upplýsingar um þann virðisaukaskatt sem hefur verið greiddur skal koma fram á frumriti reiknings eða greiðsluskjali úr tolli.

4. gr. Endurgreiðslutímabil o.fl.

Hvert endurgreiðslutímabil samkvæmt reglugerð þessari er einn mánuður og skal heildarfjárhæð virðisaukaskatts sem sótt er um endurgreiðslu á hverju sinni nema að minnsta kosti 7.000 kr.

5. gr. Umsýsla vegna endurgreiðslna.

Ríkisskattstjóri annast umsýslu vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts til Landhelgisgæslu Íslands samkvæmt reglugerð þessari og ákveður hvaða form skuli vera á því. Upplýsingar vegna endurgreiðslu skulu berast ríkisskattstjóra eigi síðar en á fimmta degi næsta mánaðar vegna viðskipta fyrra mánaðar. Sé dagurinn helgidagur eða almennur frídagur skal það vera næsti virki dagur á eftir. Upplýsingar um endurgreiðslu virðisaukaskatts sem berast eftir þann tíma skulu afgreiddar með næsta endurgreiðslutímabili.

Ríkisskattstjóri getur óskað eftir nánari skýringum og gögnum frá Landhelgisgæslu Íslands vegna endurgreiðslunnar telji hann þess þurfa.

Réttur til endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari fellur niður ef upplýsingar um endurgreiðslu berast ríkisskattstjóra eftir að sex ár eru liðin frá því að réttur til endurgreiðslu stofnaðist.

6. gr. Afgreiðsla endurgreiðslna.

Ríkisskattstjóri skal senda Fjársýslu ríkisins upplýsingar um endurgreiðslu virðisaukaskatts samkvæmt reglugerð þessari eins fljótt og auðið er, þó ekki síðar en 20 dögum eftir lok endurgreiðslutímabils.

Fjársýsla ríkisins annast endurgreiðslu til Landhelgisgæslu Íslands.

7. gr. Ársskýrsla.

Landhelgisgæslan skal fyrir 1. mars ár hvert senda utanríkisráðuneytinu yfirlit yfir þá reikninga sem hún hefur fengið endurgreiddan virðisaukaskatt af á næstliðnu ári.

8. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 21. og 27. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 754/2009 um endurgreiðslu virðisaukaskatts til Varnarmálastofnunar.

Bráðabirgðaákvæði.

Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. um tímafresti skal virðisaukaskattur, sem fellur undir 1. gr. og Landhelgisgæsla Íslands hefur greitt fyrir gildistöku reglugerðarinnar, eftir að stofnunin tók við rekstri öryggis- og varnarsvæða skv. 1. gr., endurgreiddur samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar.

Utanríkisráðuneytinu, 22. október 2012.

F. h. r.

Einar Gunnarsson.

Jörundur Valtýsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.