Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 14. júní 2023

880/2015

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Jemen.

1. gr. Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:

  1. ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,
  2. ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða
  3. ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, eftir því sem við á.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2014/932/SSUÖ frá 18. desember 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.
1.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/882 frá 8. júní 2015 um breytingu á ákvörðun 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.
1.2 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1927 frá 26. október 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.2.
1.3 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1747 frá 29. september 2016 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.3.
1.4 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/634 frá 3. apríl 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.4.
1.5 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/694 frá 7. maí 2018 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.5.
1.6 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/490 frá 2. apríl 2020 um breytingu á ákvörðun 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.6.
1.7 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/398 frá 5. mars 2021 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.7.
1.8 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/2016 frá 18. nóvember 2021 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.8.
1.9 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/420 frá 14. mars 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.9.
1.10 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/1902 frá 6. október 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.10.
1.11 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2035 frá 24. október 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.11.
1.12 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.12.
2. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1352/2014 frá 18. desember 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 3.
2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/878 frá 8. júní 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 4.
2.2 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/879 frá 8. júní 2015 um framkvæmd 1. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 frá 18. desember 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 5.
2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/1920 frá 26. október 2015 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.3.
2.4 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/1737 frá 29. september 2016 um framkvæmd 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.4.
2.5 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/628 frá 3. apríl 2017 um framkvæmd 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.5.
2.6 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/689 frá 7. maí 2018 um framkvæmd 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.6.
2.7 Reglugerð ráðsins (ESB) 2020/488 frá 2. apríl 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.7.
2.8 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/397 frá 5. mars 2021 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.8.
2.9 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/2015 frá 18. nóvember 2021 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.9.
2.10. Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/1901 frá 6. október 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.10.
2.11 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2034 frá 24. október 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.11.
2.12 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/331 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.12.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr. Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  1. ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "Bandalagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  2. ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  3. tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  4. tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  5. tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
  6. vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.

4. gr. Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr. Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr. Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.