Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Breytingareglugerð

516/2016

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbýu nr. 887/2015.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Ákvæði 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Líbíu nr. 887/2015 hljóði svo:

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1333 frá 31. júlí 2015 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og niðurfellingu ákvörðunar (SSUÖ) 2011/137, fylgiskjal 1.
1.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/478 frá 31. mars 2016 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og niðurfellingu ákvörðunar (SSUÖ) 2011/137, fylgiskjal 1.1.
2. Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/44 frá 18. janúar 2016 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 204/2011, fylgiskjal 2.
2.1 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/466 frá 31. mars 2016 um framkvæmd 2. mgr. 21. gr. reglugerðar (ESB) 2016/44 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 204/2011, fylgiskjal 2.1.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.

Lilja Alfreðsdóttir.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.