Utanríkisráðuneyti

234/2017

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið nr. 760/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið nr. 760/2014, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:

  1.6 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/2459 frá 23. desember 2015 um fram­kvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.6.
  1.7 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/360 frá 11. mars 2016 um framkvæmd ákvörð­unar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgi­skjal 1.7.
  1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/564 frá 11. apríl 2016 um breytingu á ákvörðun 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.8.
  1.9 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1446 frá 31. ágúst 2016 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgi­skjal 1.9.
  2.6 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/2454 frá 23. desember 2015 um framkvæmd 1. og 3. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.6.
  2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/354 frá 11. mars 2016 um framkvæmd 1. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríku­lýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.7.
  2.8 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/555 frá 11. apríl 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.8.
  2.9 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/1442 frá 31. ágúst 2016 um framkvæmd 1. og 3. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.9.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 22. febrúar 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica