Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

523/2024

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 605/2021 um skráningarkerfi með losunarheimildir.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi gildir um almennar kröfur auk krafna sem varða starfrækslu og viðhald skrán­ingarkerfis með losunarheimildir sem stofnaðar eru innan ramma viðskiptakerfis ESB með losunar­heimildir skv. lögum nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Reglugerðin gildir einnig um árlegar losunarúthlutunareiningar, sbr. 6. gr. a og 47. gr. laga um loftslagsmál.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "II. viðauka laga um loftslagsmál" í 3. tl. kemur: I. viðauka laga um viðskipta­kerfi ESB með losunarheimildir.
  2. Í stað orðanna "3. gr. laga um loftslagsmál" í 4. tl. kemur: 2. gr. laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
  3. Í stað orðanna "laga um loftslagsmál" í 10. tl. kemur: laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
  4. Í stað orðanna "21. gr. b. laga um loftslagsmál" í 14. tl. kemur: 11. gr. laga um viðskipta­kerfi ESB með losunarheimildir.

 

3. gr.

Í stað orðanna "4. gr. laga um loftslagsmál og reglugerð um viðskiptakerfi ESB með losunar­heimildir" í 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 3. gr. laga um viðskiptakerfi ESB með losunar­heimildir og reglugerð um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.

 

4. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "22. gr. i. laga um loftslagsmál" í 1. mgr. kemur: 14. gr. laga um viðskipta­kerfi ESB með losunarheimildir.
  2. Í stað orðanna "VIII. kafla laga um loftslagsmál" í a-lið 1. mgr. kemur: 19. gr. laga um viðskipta­kerfi ESB með losunarheimildir.

 

5. gr.

Í stað orðanna "reglugerð um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir" í 7. gr. reglugerðar­innar kemur: reglugerð um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.

 

6. gr.

Í stað orðanna "lögum um loftslagsmál" í 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar kemur: lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

 

7. gr.

Í stað orðanna "38. gr. laga um loftslagsmál" í 1. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar kemur: 25. gr. laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

 

8. gr.

Í stað orðanna "XII. kafla laga um loftslagsmál" í 14. gr. reglugerðarinnar kemur: VIII. kafla laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

 

9. gr.

Í stað orðanna "XIII. kafla laga um loftslagsmál" í 15. gr. reglugerðarinnar kemur: X. kafla laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

 

10. gr.

Eftirfarandi stafliður bætist við 16. gr. reglugerðarinnar:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1642 frá 14. júní 2023 um breyt­ingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/1122 að því er varðar nútímavæðingu reksturs á skrá Sambandsins, sem vísað er til í tölul. 21anb í XX. viðauka samningsins um Evrópska efna­hags­svæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 336/2023, frá 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, 2024/EES/11/83, bls. 799-807.

 

11. gr.

1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunar­heimildir og öðlast gildi við birtingu.

 

12. gr.

Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirtalinni gerð:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1642 frá 14. júní 2023 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/1122 að því er varðar nútímavæðingu reksturs á skrá Sambands­ins, sem vísað er til í tölulið 21anb í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 336/2023, frá 8. desember 2023.

 

13. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunar­heimildir og öðlast gildi við birtingu.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 29. apríl 2024.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica