Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

679/2016

Reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði. - Brottfallin

1. gr.

Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæð­inu, eftir því sem nánar er kveðið á um í 2. og 3. gr. Virðisaukaskattur og gisti­nátta­skattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr.  Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 3. gr.


2. gr.

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl:

1. Almennt gjald kr. 1.600
2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 750

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt:

1. Almennt gjald kr. 6.000
2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 3.000

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt:

1. Almennt gjald kr. 4.500
2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 2.250

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.

 

3. gr.

Gjald fyrir aðra þjónustu:

1. Sturtugjald, eitt skipti kr. 500
2. Rafmagn fyrir húsbíl, hjólhýsi og fellihýsi, einn sólarhringur kr. 900
3. Afnot af þvottavél, eitt skipti kr. 500
4. Afnot af þurrkara, eitt skipti kr. 500
5. Gjald vegna almenns aðgangs að aðstöðu í skála, einn dagur kr. 500
6. Tjaldleiga, einn sólarhringur kr. 5.000
7. Sértæk þjónusta við ferðamenn skv. beiðni, sem felur í sér sérstakt vinnuframlag af hálfu starfsmanna þjóðgarðsins og akstur, gjald fyrir hverja klst. kr. 12.000
8. Kortabæklingur kr. 500 stk.
9. Aðrir bæklingar kr. 350 stk.

 

4. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatna­jökuls­þjóðgarð, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um gjald­töku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði, nr. 877/2015.

 Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. júlí 2016.

F. h. r.
 Stefán Guðmundsson.

Björgvin Valdimarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica