Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

895/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 564/2014, um lok úrgangsfasa.

1. gr.

Á eftir b. lið 1. gr. reglugerðarinnar bætist við nýr stafliður:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 715/2013 frá 25. júlí 2013 um viðmiðanir til að ákvarða hvenær koparrusl hættir að vera úrgangur samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/ESB, sem vísað er til í tölulið 32ffc, V. kafla, XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 142/2014 frá 27. júní 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014 - 2014/EES/54/61, bls. 592-598.

2. gr.

Á eftir b. lið 2. gr. reglugerðarinnar bætist við nýr stafliður:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 715/2013 frá 25. júlí 2013 um viðmiðanir til að ákvarða hvenær koparrusl hættir að vera úrgangur samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/ESB.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í i-lið 43. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 26. september 2014.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.