Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

682/2016

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.

1. gr.

Á eftir q-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýr stafliður svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2015/2002 frá 10. nóvember 2015 um breytingu á I. viðauka C og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs, sem vísað er til í tölulið 32c, V. kafla XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2016 frá 29. apríl 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27 frá 12. maí 2016, 2016/EES/27/62, bls. 1367-1397.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2015/2002 frá 10. nóvember 2015 um breytingu á I. viðauka C og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 43. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 18. júlí 2016.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Íris Bjargmundsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.