Sjávarútvegsráðuneyti

287/2007

Reglugerð um veiðar úr úthafskarfastofnum 2007. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa vestan 22. gráðu vestlægrar lengdar úr úthafskarfastofnum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndar­innar (NEAFC), utan þeirra svæða sem falla undir fiskveiðilögsögu samningsaðila og innan fiskveiðilandhelgi Grænlands, í samræmi við samning þjóðanna þess efnis. Ennfremur til úthafskarfaveiða fiskiskipa, sem leyfi hafa til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er þau stunda veiðar á úthafskarfa með flotvörpu utan línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 65°20´N - 29°45´V (við miðlínu milli Íslands og Grænlands).
2. 63°00´N - 26°00´V
3. 62°00´N - 27°00´V
4. 60°22´N - 24°20´V

Þá tekur reglugerðin til veiða á úthafskarfa sem veiddur er á svæðum 1f, 2g, 2h, 2j og 3k á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO og reiknast aflinn til aflamarks viðkomandi skips sbr. 2. mgr. 3. gr. Um þær veiðar gilda ákvæði reglugerðar um veiðar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO. Fiskistofu er heimilt að stöðva veiðar íslenskra skipa á ofangreindum svæðum þegar heildarafli skipa frá aðildarríkjum NEAFC nær 9.584 lestum.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á úthafskarfa skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á úthafskarfa í flotvörpu, sem hafa aflamark í úthafskarfa, sbr. 3. og 4. gr.

3. gr.

Á árinu 2007 er þeim íslensku fiskiskipum, sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu, sbr. 2. gr. heimilt að veiða 17.248 lestir af úthafskarfa á "deilisvæði" innan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 65°20´N - 29°45´V
2. 63°00´N - 26°00´V
3. 62°00´N - 27°00´V
4. 60°22´N - 24°20´V
5. 60°14´N - 30°00´V
6. 62°55´N - 34°00´V

Þá er þeim íslensku fiskiskipum sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu á árinu 2007, sbr. 2. gr. heimilt að veiða 3.835 lestir af úthafskarfa á "deilisvæði" utan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 60°22´N - 24°20´V
2. 60°14´N - 30°00´V
3. 62°55´N - 34°00´V
4. 65°20´N - 29°45´V

Fiskistofa skal úthluta hverju skipi aflamarki í úthafskarfa á grundvelli aflahlutdeildar þess, annars vegar innan þess svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og hins vegar innan þess svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. í þeim hlutföllum sem í 1. og 2. mgr. þessarar greinar segir.

Stundi skip veiðar með flotvörpu á svæðum, sem skilgreind eru í 1.-2. mgr. þessarar greinar, reiknast allur karfaafli skipsins til aflamarks skipsins í úthafskarfa samkvæmt reglugerð þessari.

4. gr.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt þeim reglum, sem almennt gilda um framsal aflahlutdeildar og aflamarks samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

Ákvæði 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, gilda ekki um aflamark sem úthlutað er í úthafskarfa samkvæmt þessari reglugerð. Þó er heimilt að flytja allt að 5% af aflamarki úthafskarfa frá einu fiskveiðiári yfir á það næsta. Þá er heimilt að veiða 5% umfram aflamark í úthafskarfa, enda dregst sá umframafli frá við úthlutun aflamarks næsta fiskveiðiárs á eftir.

5. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á samningssvæði NEAFC sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 1. mgr., bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á 6 klukkustunda fresti til eftirlitsstöðvarinnar. Einnig skulu tilkynningar skv. 6. og 7. gr. innihalda upplýsingar um staðsetningu skipsins.

6. gr.

Við úthafskarfaveiðar innan fiskveiðilandhelgi Íslands, sbr. 2. málslið 1. gr., við úthafs­karfaveiðar í fiskveiðilögsögu Grænlands og eftir því sem við á á alþjóðlegu haf­svæði, skal senda eftirgreindar tilkynningar til eftirlitsstöðvarinnar:

Komutilkynning: Skylt er skipstjóra að tilkynna til eftirlitsstöðvarinnar með mest 12 klukkustunda og minnst 6 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á veiðisvæði sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. eða veiðisvæði sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. Í til­kynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Kóði viðtakanda: "ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
  2. Raðnúmer skeytisins.
  3. Kóði fyrir tegund skeytisins: "COE" sem komutilkynning.
  4. Kóði fyrir það deilisvæði sem fara á inn á: "UKS" fyrir úthafskarfasvæðið skv. 1. mgr. 3. gr. eða "UKX" fyrir úthafskarfasvæði samkv. 2. mgr. 3. gr.
  5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem verið er að fara inn á: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC, "ISL" fyrir íslenska lögsögu eða "GRL" fyrir lögsögu Grænlands.
  6. Kallmerki skipsins.
  7. Nafn skipsins.
  8. Skipaskrárnúmer.
  9. Staðsetning skipsins í gráðum og heilum mínútum.
  10. Áætlað heildaraflamagn um borð í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
  11. Dagsetning og tími.

Aflatilkynning: Hvern mánudag skal tilkynna eftirlitsstöðinni um heildarafla síðustu viku, þ.e. frá upphafi síðasta mánudags, til loka síðasta sunnudags, miðað við afla upp úr sjó, sundurgreindan eftir tegundum. Hafi skip verið skemur en viku á veiðisvæðinu skal gefa upp afla frá því skipið hóf veiðar á svæðinu. Ennfremur skal senda aflatilkynningu áður en farið er milli svæða sbr. 1. og 2. mgr. 3. gr. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Kóði viðtakanda: "ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
  2. Raðnúmer skeytisins.
  3. Kóði fyrir tegund skeytisins: "CAT" sem aflatilkynning.
  4. Kóði fyrir það deilisvæði sem aflatilkynningin á við: "UKS" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr. "UKX" fyrir úthafskarfasvæði samkv. 2. mgr. 3. gr.
  5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem aflinn er veiddur á: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC, "ISL" fyrir íslenska lögsögu eða "GRL" fyrir lögsögu Grænlands.
  6. Kallmerki skipsins.
  7. Vikuafli í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
  8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða en frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send.
  9. Dagsetning og tími.

Lokatilkynning: Þegar veiðiskip yfirgefur svæðið sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. eða svæðið sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. skal það tilkynnt eftirlitsstöðinni með mest 8 klukkustunda og minnst 6 klukkustunda fyrirvara. Jafnframt skal í tilkynningu tilgreindur afli frá því að veiðar hófust, eða frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send miðað við afla upp úr sjó, aðgreindan eftir tegundum og einnig löndunarhöfn. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Kóði viðtakanda: "ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
  2. Raðnúmer skeytisins.
  3. Kóði fyrir tegund skeytisins: "COX" sem lokatilkynning.
  4. Kóði fyrir það deilisvæði sem lokatilkynningin á við: "UKS" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr. "UKX" fyrir úthafskarfasvæði samkv. 2. mgr. 3. gr.
  5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem verið er að fara út af: "NEA" fyrir samningssvæði, "ISL" fyrir íslenska lögsögu eða "GRL" fyrir lögsögu Grænlands.
  6. Kallmerki skipsins.
  7. Vikuafli í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
  8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða en frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send.
  9. Löndunarhöfn (áætlaður tími og dagsetning þar).
  10. Dagsetning og tími.

7. gr.

Við úthafskarfaveiðar á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), er skipstjórum heimilt að senda eftirgreindar tilkynningar til eftirlitsstöðvarinnar í stað tilkynninga skv. 6. gr. Í tilkynningum skv. þessari grein er skipstjórum heimilt að senda komu- og lokatilkynningar með 1 klukkustundar fyrirvara, jafnframt þurfa skip­stjórar að senda daglegar aflatilkynningar á meðan á veiðum á samningssvæðinu stendur.

Eftirlitsskipum, sem stödd eru á svæðinu, er heimilt að óska eftir því að veiðiskip hefji ekki veiðar eða sigli ekki af svæðinu fyrr en að lokinni skoðun. Ef slík ósk berst er skipstjóra skylt að bíða eftir að skoðun fari fram, þó ekki lengur en 6 klukkustundir.

Komutilkynning: Skylt er skipstjóra að tilkynna til eftirlitsstöðvarinnar með að minnsta kosti 1 klukkustundar fyrirvara áður en farið er inn á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upp­lýsingar:

  1. Kóði viðtakanda: "ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
  2. Raðnúmer skeytisins.
  3. Kóði fyrir tegund skeytisins: "COE" sem komutilkynning.
  4. Kóði fyrir það deilisvæði sem fara á inn á: "UKS" fyrir úthafskarfasvæðið skv. 1. mgr. 3. gr.
  5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem verið er að fara inn á: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC.
  6. Kallmerki skipsins.
  7. Nafn skipsins.
  8. Skipaskrárnúmer.
  9. Staðsetning skipsins í gráðum og heilum mínútum.
  10. Áætlað heildaraflamagn um borð í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
  11. Dagsetning og tími.

Aflatilkynning: Daglega skal tilkynna eftirlitsstöðinni um heildarafla síðasta sólarhrings, þ.e. frá kl. 00.00 til 24.00, miðað við afla upp úr sjó, sundurgreindan eftir tegundum. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Kóði viðtakanda: "ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
  2. Raðnúmer skeytisins.
  3. Kóði fyrir tegund skeytisins: "CAT" sem aflatilkynning.
  4. Kóði fyrir það deilisvæði sem aflatilkynningin á við: "UKS" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr.
  5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem aflinn er veiddur á: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC
  6. Kallmerki skipsins.
  7. Afli í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
  8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða en frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send.
  9. Dagsetning og tími.

Lokatilkynning: Þegar veiðiskip yfirgefur samningssvæði Norðaustur-Atlantshafs­fiskveiðinefndarinnar (NEAFC) skal það tilkynnt eftirlitsstöðinni með að minnsta kosti 1 klukkustundar fyrirvara. Jafnframt skal í tilkynningu tilgreindur afli frá því að veiðar hófust, eða frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send miðað við afla upp úr sjó, aðgreindan eftir tegundum og einnig löndunarhöfn ef við á. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Kóði viðtakanda: "ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
  2. Raðnúmer skeytisins.
  3. Kóði fyrir tegund skeytisins: "COX" sem lokatilkynning.
  4. Kóði fyrir það deilisvæði sem lokatilkynningin á við: "UKS" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr.
  5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem verið er að fara út af: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC.
  6. Kallmerki skipsins.
  7. Afli í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
  8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða en frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send.
  9. Löndunarhöfn ef við á (áætlaður tími og dagsetning þar).
  10. Dagsetning og tími.

8. gr.

Tilkynningar skv. 6. og 7. gr. skulu sendar með þeim hætti er lýst er í viðaukum I og II við reglugerð nr. 447/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafs­fiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum.

Um tilkynningar við úthafskarfaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 447/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafs­fiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum.

9. gr.

Stundi skip úthafskarfaveiðar og almennar togveiðar í lögsögu Íslands í sömu veiðiferð skal halda úthafskarfa aðgreindum frá öðrum afla um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun.

Skylt er að halda aðgreindum úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun. Sé úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. ekki haldið aðgreindum sbr. 1. málslið þessarar málsgreinar skal aflinn reiknaður til aflamarks í úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr.

Er afli reiknast til aflamarks skal miðað við 94% nýtingu sé úthafskarfa landað slægðum með haus, 55% nýtingu sé úthafskarfa landað hausskornum, 30% nýtingu sé honum landað flökuðum með roði og beinum, 27% nýtingu sé honum landað flökuðum, roðlausum með beinum.

Þegar úthafskarfi er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,73.

10. gr.

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan úthafskarfaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram úthafskarfaafli skipsins miðað við afla upp úr sjó sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiði­landhelgi Grænlands. Einnig skal koma fram hve mikill hluti aflans er fenginn á hvoru svæðinu skv. 1. og 2. mgr. 3. gr.

11. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lög­sögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57, 3. júní 1996, með síðari breytingum og lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breyt­ingum.

12. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57, 3. júní 1996, með síðari breytingum og lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 29. mars 2007.

F. h. r.

Árni Múli Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica