Sjávarútvegsráðuneyti

719/2007

Reglugerð um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða. - Brottfallin

1. gr.

Þar sem engar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar á Arnarfirði, Ísafjarðardjúpi, Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfandaflóa, Axarfirði, Eldeyjarsvæði og Norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2006/2007, skal á fiskveiðiárinu 2007/2008 úthluta aflamarki sem nemur samtals 1.184 þorskígildislestum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við, að skerðingin, verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997 - 2005/2006. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi, og koma 202 lestir í hlut báta frá Arnarfirði, 373 lestir í hlut báta við Ísafjarðardjúp, 148 lestir í hlut báta við Húnaflóa, 153 lestir í hlut báta við Skagafjörð, 70 lestir í hlut báta við Skjálfandaflóa, 201 lest í hlut báta við Axarfjörð, 23 lestir í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 lestir í hlut báts í Norðurfjörðum Breiðafjarðar.

2. gr.

Þar sem engar hörpudisksveiðar eru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði skal á fiskveiðiárinu 2007/2008 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildistonnum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 lestir í hlut báta frá Arnarfirði, 33 lestir í hlut báta við Húnaflóa, 919 lestir í hlut báta við Breiðafjörð og 24 lestir í hlut báta við Hvalfjörð.

3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar, sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2007. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa og steinbít í hlutfalli við leyfilegt heildarmagn í þessum tegundum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2007.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 3. ágúst 2007.

Einar K. Guðfinnsson.

Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica