Sjávarútvegsráðuneyti

72/2006

Reglugerð um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2006. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til loðnuveiða grænlenskra, norskra og færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, á tímabilinu 31. janúar 2006 til 30. apríl 2006. Óheimilt er að stunda veiðar með öðrum veiðarfærum en nót.

2. gr.

Aðeins þeim skipum sem fengið hafa sérstakt leyfi frá Fiskistofu er heimilt að stunda loðnuveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Um borð í veiðiskipi skal vera leyfi til loðnuveiða eða afrit af því.

Skip sem óska eftir leyfi til loðnuveiða skulu sækja um það til Fiskistofu. Í umsókninni komi fram upplýsingar um nafn skips, skráningarnúmer, kallmerki, stærð í brt., burðar­getu og upplýsingar um fjarskiptatæki. Skip sem afsala sér veiðileyfi skulu til­kynna það Fiskistofu og komi sömu upplýsingar fram og í umsókninni.

3. gr.

Norskum skipum er heimilt að veiða samtals 19.481 lestir í efnahagslögsögu Íslands og er þeim aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar í efnahagslögsögu Íslands til 15. febrúar 2006 og norðan við 64°30¢ N.

Færeyskum skipum er heimilt að veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands samtals 30.000 lestir.

Grænlenskum skipum er heimilt að veiða 3.300 lestir í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Erlend veiðiskip skulu hlíta þeim verndaraðgerðum sem stjórnvöld og Hafrannsókna­stofnun kunna að grípa til.

4. gr.

Færeyskum, grænlenskum og norskum skipum er heimilt að landa afla sínum í íslenskum höfnum og gilda um vigtun afla sömu reglur og gilda fyrir íslensk skip. Óheimilt er að umskipa afla í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Færeyskum skipum er óheimilt að vinna afla eða frysta um borð á tímabilinu janúar til apríl og utan Íslands er þeim einungis heimilt að landa loðnu til bræðslu.

5. gr.

Ekki skulu fleiri en 25 norsk skip stunda veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands samtímis.

Ekki skulu fleiri en 10 færeysk skip stunda loðnuveiðar samtímis.

Óheimilt er að hefja veiðar í fiskveiðilandhelginni nema fyrir liggi staðfesting frá Land­helgis­gæslu Íslands um að fjöldi skipa sé innan tilskilinna marka.

Ekki skulu fleiri loðnuveiðiskip frá hverri þjóð vera í fiskveiðilandhelgi Íslands hverju sinni, en hlotið hafa staðfestingu frá Landhelgisgæslunni, sbr. þó 12. gr.

6. gr.

Skip skulu, á leið til veiðisvæðis áður en veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands hefjast og á leið út úr fiskveiðilandhelgi Íslands, sigla um einn af eftirfarandi athugunarstöðum:

a) 65°00¢ N - 10°00¢ V
b) 66°15¢ N - 09°00¢ V
c) 67°30¢ N - 10°00¢ V
d) 68°30¢ N - 11°00¢ V
e) 69°15¢ N - 13°00¢ V
f) 68°40¢ N - 16°30¢ V
g) 68°00¢ N - 20°00¢ V

Landhelgisgæslu Íslands er heimilt að ákveða hvaða athugunarstað veiðiskip siglir um. Heimilt er með samþykki Landhelgisgæslunnar að halda til annarra athugunarstaða en tilgreindir eru í 1. mgr.

Óheimilt er að yfirgefa athugunarstað áður en tilkynntur komutími er liðinn, skv. 8. og 11. gr., nema að fengnu samþykki Landhelgisgæslunnar.

7. gr.

Skip sem leyfi hafa fengið til loðnuveiða sbr. 2. gr. skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgis­gæslu og Fiskistofu hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin.

8. gr.

Tilkynna skal Eftirlitsstöðinni siglingu skipsins inn í íslenska lögsögu og komutíma í athug­unarstöð með minnst 6 klukkustunda fyrirvara og mest 12 klukkustunda fyrirvara.

Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "komutilkynning" (entry report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Athugunarstaður sem siglt verður um sbr. 6. gr. og fyrirhugaður komutími á staðinn.

Haldi skip til veiða úr íslenskri höfn skal það tilkynnt Eftirlitsstöðinni á sama hátt og greint er í 1. mgr.

9. gr.

Skip sem stundar veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands skal á hverjum degi á tímabilinu frá kl. 00.00 til 08.00 að íslenskum tíma, senda Eftirlitsstöðinni tilkynningu þar sem eftir­farandi kemur fram í þessari röð:

Orðið "aflatilkynning" (catch report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Afli síðasta sólarhrings, miðað við kl. 24.00, eða afli frá því skipið kom inn í fiskveiðilandhelgi Íslands sé um skemmri tíma að ræða.

10. gr.

Þegar skip lýkur veiðum í fiskveiðilandhelgi Íslands skal það tilkynnt Eftirlitsstöðinni. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "lokatilkynning" (exit report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Afli síðan síðasta aflatilkynning var send.

11. gr.

Áður en skip heldur út úr fiskveiðilandhelgi Íslands skal senda Eftirlitsstöðinni tilkynningu um það og komutíma í athugunarstöð með minnst 6 klukkustunda fyrirvara og mest 12 klukkustunda fyrirvara. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "athugunartilkynning" (control report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Athugunarstaður sem siglt verður um sbr. 6. gr. og fyrirhugaður komutími á staðinn.

Landi skip afla sínum í íslenskri höfn skal tilkynna það Eftirlitsstöðinni á sama hátt og greint er frá í 1. mgr. en í stað athugunarstaðar í síðasta lið verði greint frá löndunarhöfn.

Heimilt er að senda saman tilkynningu um lok veiða sbr. 10. gr. og um komu á athug­unarstað. Við sendingu slíkrar tilkynningar eiga við ákvæði þessarar greinar að öðru leyti en því að í stað orðsins: "athugunartilkynning" (control report) koma orðin: "loka- og athugunartilkynning" (exit og control report).

12. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. er skipum sem ekki hafa staðfestingu Landhelgisgæslunnar sbr. 3. og 4. mgr. 5. gr. heimil óslitin sigling um fiskveiðilandhelgina, enda tilkynni þau til Landhelgisgæslunnar um komu sína í fiskveiðilandhelgina, eða brottför úr íslenskri höfn, með minnst 6 klukkustunda fyrirvara og mest 12 klukkustunda fyrirvara. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "In".
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar sigling út úr lögsögunni er áætluð.

Á 12 klukkustunda fresti skal síðan senda tilkynningu um staðsetningu skipsins til Land­helgis­gæslunnar. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "Staðsetningartilkynning" (position report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími, stefna, hraði og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.

Þegar skip siglir út úr íslenskri fiskveiðilandhelgi skal það tilkynnt til Landhelgis­gæsl­unnar. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "Out".
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar skip siglir út úr lögsögunni.

13. gr.

Skipstjórum erlendra loðnuskipa ber að auðvelda eins og unnt er eftirlit Landhelgisgæslu og Fiskistofu með veiðum, veiðarfærum og afla um borð í veiðiskipum. Telji eftirlitsaðilar að fullnægjandi eftirlit geti ekki farið fram á sjó er hlutaðeigandi skipstjórum skylt að hlíta fyrirmælum um að halda til nálægrar hafnar þar sem athugun getur farið fram.

Fiskistofu er heimilt að setja eftirlitsmenn um borð í erlend loðnuveiðiskip. Skal útgerð skipsins sjá eftirlitsmönnum fyrir fæði og aðstöðu meðan þeir eru um borð við eftirlit og ennfremur greiða allan kostnað af veru þeirra um borð í skipinu.

Í afladagbók, sem skal vera innbundin, með númeruðum síðum og í tvíriti, skal skipstjóri skrá eftirfarandi upplýsingar: Nafn skips, skráningarnúmer og kallmerki. Fyrir hvert kast skal skrá staðsetningu, dagsetningu og tíma þegar nótinni er kastað og afla í hverju kasti í tonnum, áður en nótinni er kastað á ný. Einnig skal skrá heildarafla á sólarhring í fiskveiðilandhelgi Íslands, stærð nótar og möskvastærð. Þá skal skipstjóri undirrita hverja síðu. Jafnframt skal Hafrannsóknastofnuninni sent afrit úr afladagbókum, sé þess óskað.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og Veiðieftirlits Fiskistofu skulu hafa aðgang að eftir­töldum gögnum sé þess óskað:

Afladagbók.
Skipsdagbók.
Mælibréfi.
Teikningum af skipi.
Veiðileyfi frá Fiskistofu eða afriti af því.
Upplýsingum úr siglingatölvum og staðsetningartækjum skips.
Öðrum gögnum sem skipt geta máli við rannsókn meintra fiskveiðabrota.

Um borð í hverju skipi skulu vera teikningar af lestum þess þar sem fram kemur heildarrúmmál hverrar lestar. Þá skulu teikningar eða gögn sýna hvert rúmmál lestanna er miðað við 10 sentímetra millibil frá ákveðnum og merktum viðmiðunarstað.

14. gr.

Skipum ber að fylgja banni ráðuneytisins við veiðum vegna verndunarsjónarmiða og skyndilokunum Hafrannsóknastofnunarinnar, sbr. 8.-11. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

15. gr.

Heimilt er að veita undanþágu frá ákvæðum 6. gr. og 8.-11. gr. hafi aðilar gert sam­komu­lag þar um.

16. gr.

Tilkynningar skv. 7.-11. gr. skal senda á íslensku eða ensku, og skulu tímasetningar vera miðaðar við íslenskan tíma, UTC.

Skip sem hafa veiðileyfi skv. reglugerð þessari skulu að öðru leyti fylgja ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands.

17. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

Jafnframt getur Fiskistofa svipt skip leyfi til loðnuveiða innan fiskveiðilandhelginnar brjóti útgerð eða áhöfn skips eða aðrir sem í þágu útgerðar starfa, gegn reglugerð þessari.

18. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 1. febrúar 2006.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica