Sjávarútvegsráðuneyti

752/2006

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rifsbanka nema notuð sé smáfiskaskilja eða 155 mm poki í botnvörpu. - Brottfallin

1. gr.

Veiðar með fiskibotnvörpu á svæði á Rifsbanka eru því aðeins heimilar að varpan sé búin smáfiskaskilju eða 155 mm poka í samræmi við reglugerð nr. 724, 28. ágúst 2006, um gerð og útbúnað smáfiskaskilju og notkun á 155 mm poka í botnvörpu. Svæðið markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.  67° 12¢ N - 16° 05¢ V
2.  67° 16¢ N - 15° 17¢ V
3.  67° 03¢ N - 14° 23¢ V
4.  66° 58¢ N - 14° 37¢ V
5.  66° 52¢ N - 15° 50¢ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 1. september 2006 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 765, 20. september 2004, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rifsbanka án smáfiskaskilju.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 29. ágúst 2006.

F. h. r.

Árni Múli Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica