Sjávarútvegsráðuneyti

601/2005

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 669, 12. ágúst 2004, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2004/2005. - Brottfallin

1. gr.

Á töflu í 2. gr. reglugerðarinnar verða eftirfarandi breytingar:
Leyfilegur heildarafli fyrir steinbít (4) verður 13.044 lestir, sbr. 1. tl., til línuívilnunar koma 644 lestir, sbr. 7. tl. og til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar komi 11.511, sbr. 8. tl.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 23. júní 2005.

Árni M. Mathiesen.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica