Sjávarútvegsráðuneyti

468/2005

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 386, 15. apríl 2005, um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum 2005. - Brottfallin

1. gr.

5. gr. orðast svo:
Síldarafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa síldarafla og síldarafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtaðri síld um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar síldar utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætlað magn síldar. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda síldarinnar eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir.

Heimilt er að miðla afla úr nót til skips, sem leyfi hefur til síldveiða í því skyni að koma í veg fyrir að síld sé sleppt dauðri úr nótum.

Um vigtun á síld gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 522/1998, um vigtun sjávarafla, með síðari breytingum, þó þannig að draga skal 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í síld, miðað við afla upp úr sjó, og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

Þegar norsk-íslensk síld er reiknuð til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,11.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 18. maí 2005.

F. h. r.
Vilhjálmur Egilsson.
Guðríður M. Kristjánsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica