Sjávarútvegsráðuneyti

1026/2004

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 669, 12. ágúst 2004, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2004/2005. - Brottfallin

1. gr.

Á töflu í 2. gr. reglugerðarinnar verða eftirfarandi breytingar:

a. Leyfilegur heildarafli fyrir ýsu (2) verður 90.722 lestir, sbr. 1. tl., og til línuívilnunar koma 1.472 lestir, sbr. 7. tl.
b. Leyfilegur heildarafli fyrir steinbít (4) verður 13.044 lestir, sbr. 1. tl., og til línuívilnunar koma 944 lestir, sbr. 7. tl.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum til að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 22. desember 2004.

Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica