Sjávarútvegsráðuneyti

25/2005

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1074, 29. desember 2004, um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski 2005, skv. samningi milli Íslands, Noregs og Rússlands. - Brottfallin

1 gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Innan efnahagslögsögu Noregs, norðan við 62°00´N og utan 12 sjómílna frá grunnlínum, er íslenskum skipum heimilt að veiða alls 4.367 tonn af þorski, auk 1.310 tonna aukaafla af öðrum tegundum, miðað við afla upp úr sjó. Innan efnahagslögsögu Rússlands, utan 12 sjómílna frá grunnlínum, er íslenskum skipum heimilt að veiða alls 2.729 tonn af þorski, auk 819 tonna aukaafla af öðrum tegundum, miðað við afla upp úr sjó.

Í hverri veiðiferð innan efnahagslögsögu Noregs eða Rússlands, skal afli af öðrum tegundum en þorski, ekki vera meiri en sem nemur 30% af þorskafla, miðað við afla upp úr sjó.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 10. janúar 2005.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica