Sjávarútvegsráðuneyti

866/2004

Reglugerð um bann við línuveiðum á sunnanverðum Breiðafirði. - Brottfallin

866/2004

REGLUGERÐ
um bann við línuveiðum á sunnanverðum Breiðafirði.

1. gr.

Frá og með 6. nóvember 2004 eru allar línuveiðar bannaðar sunnan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 64° 5400 N - 23° 5800 V
2. 64° 5700 N - 23° 5500 V
3. 64° 5800 N - 23° 3900 V
4. 65° 0500 N - 23° 2000 V
5. 65° 0700 N - 23° 0000 V
6. 65° 1100 N - 22° 4800 V
7. 65° 1600 N - 22° 4800 V
8. 65° 1600 N - 22° 2450 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 2. nóvember 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica