Sjávarútvegsráðuneyti

336/2003

Reglugerð um rækjuveiðar á Breiðafirði 2003. - Brottfallin

1. gr.

Á tímabilinu 15. maí til 30. júní 2003, er skipum sem eru 105 brl. að stærð eða minni og skráð eru frá höfnum á norðanverðu Snæfellsnesi og gerð eru út þaðan heimilt að stunda rækjuveiðar á Breiðafirði, sunnan 65°10´N og utan línu, sem dregin er réttvísandi norður frá Krossnessvita. Við veiðar á þessu svæði skulu skipin búin seiðaskilju, sbr. reglugerð nr. 304 3. maí 1999. Afli sem fenginn er við þessar veiðar reiknast til úthafsrækjuafla skipsins.


2. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 13. maí 2003.

Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica