Sjávarútvegsráðuneyti

236/2002

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 62, 25. janúar 2002,um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíð 2002. - Brottfallin

1. gr.

Í stað: "til og með" í 2. mgr. 1. gr., 3. mgr. 2. gr., 1. mgr. 3. gr. og í 2. mgr. 3. gr. komi: til kl. 10.00.


2. gr.

Í stað orðanna: "Frá Gjögurvita (á Ströndum)" í B-lið 3. gr. reglugerðarinnar komi: Frá Hornbjargsvita.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 18. mars 2002.

Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica