Sjávarútvegsráðuneyti

499/2000

Reglugerð um úthlutun á fiskveiðiárinu 2000/2001 skv. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXV í lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Úthluta skal á fiskveiðiárinu 2000/2001 3.000 lestum af þorski, m.v. óslægðan fisk, til báta sem höfðu aflahlutdeild 1. desember 1998 og voru þann dag minni en 200 brúttótonn, enda hafi þeir landað þorskafla á fiskveiðiárinu 1996/1997 eða 1997/1998.

 

2. gr.

Úthluta skal til einstakra báta hlutfallslega miðað við heildaraflamark þeirra í þorskígildum talið.

Við útreikning á úhlutun skv. 1. gr. skal miða við aflahlutdeildarstöðu báta eins og hún var 1. desember 1998, úthlutað heildaraflamark fiskveiðiársins 1998/1999 og verðmætastuðla á því fiskveiðiári, sbr. 11. gr. reglugerðar nr. 448/1998, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 1998/1999.

 

3. gr.

Við úthlutun skv. 1. gr. skal þorskaflamark einstakra báta ekki aukast um meira en 100%, miðað við úthlutað aflamark í upphafi fiskveiðiárs 2000/2001 og enginn bátur hljóta hærri úthlutun en 10 lestir m.v. óslægðan fisk. Úthlutun þessi skal aldrei leiða til þess að heildaraflaheimildir einstakra skipa í upphafi fiskveiðiársins 2000/2001, verði meiri en 450 þorskígildislestir samtals.

 

4. gr.

Endurnýi útgerð bát, sem rétt á til úthlutunar samkv. 1. gr. með nýðsmíði eða kaupum á öðrum báti, skal úthluta til þess báts er í staðinn kemur, enda hafi allar aflaheimildir verið fluttar yfir á hann af þeim báti, sem verið er að endurnýja og ekki hafi verið samið um annað. Tilkynna skal til Fiskistofu um slíka endurnýjun og hvorum bátnum úthlutun skal fylgja.

 

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi.

 

Sjávarútvegsráðuneytinu, 7. júlí 2000.

 

Árni M. Mathiesen.
                                                               Jón B. Jónasson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica