Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

125/2008

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 74/2002 um lífræna landbúnaðarframleiðslu og merkingar. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1336/2005 frá 12. ágúst 2005, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2006, frá 9. desember 2006 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 592/2006 frá 12. apríl 2006, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 113/2006, frá 23. september 2006, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.

2. gr.

Ofangreindar reglugerðir Evrópusambandsins eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

3. gr.

Með innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) r. 1336/2005, breytast ákvæði III. viðauka reglugerðar nr. 74/2002, um lífræna landbúnaðarframleiðslu og merkingar í samræmi við viðauka reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1336/2005.

4. gr.

Með innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 592/2006, breytast ákvæði A. hluta II. viðauka reglugerðar nr. 74/2002, um lífræna landbúnaðarframleiðslu og merkingar í samræmi við viðauka reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 592/2006.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðar­framleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. janúar 2008.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica