Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

100/2008

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu í Eyrarbakkabug. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 5. febrúar 2008 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar í Eyrarbakka­bug á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

  1. 63° 39´ N - 20° 34´ V
  2. 63° 32´ N - 20° 34´ V
  3. 63° 35´ N - 21° 00´ V
  4. 63° 46´ N - 21° 00´ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opin­berra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Frá 5. febrúar 2008, er felld úr gildi reglugerð nr. 975, 27. nóvem­ber 2006, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu í Eyrarbakkabug.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. febrúar 2008.

F. h. r.

Steinar Ingi Matthíasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica