609/2026
Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 374/2012 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
1. gr.
Við 1.gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/250 frá 2. febrúar 2026 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) 2024/3190 um notkun á bisfenóli A (BPA) og öðrum bisfenólum og bisfenólafleiðum með samræmda flokkun að því er varðar tiltekna hættulega eiginleika í tiltekna efniviði og hluti sem er ætlað að komast í snertingu við matvæli, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) 2018/213. Reglugerðin var felld inn í EES samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 123/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 278.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/245 frá 2. febrúar 2026 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 10/2011 að því er varðar leyfi eða skilyrði fyrir notkun á nokkrum efnum. Reglugerðin var felld inn í EES samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 123/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36, frá 28. maí 2026, bls. 272.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 28. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 1. júní 2026