526/2026
Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 374/2012 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2240 frá 5. nóvember 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/1442 að því er varðar umbreytingarráðstafanir fyrir efniviði og hluti úr plasti sem eru framleiddir með salisýlsýru eða óunnu viðarmjöli eða -trefjum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 219.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026